news

Gjöf frá Foreldrafélaginu

11 Nóv 2021

Foreldrafélag Barnabæjar gaf Leikskólanum Barnabæ 220 segulkubba. Magna Tiles segulkubbarnir eru mjög vinsælir kubbar hjá 3 ára og eldri. Segulkubbarnir eru tilvaldir til að efla: sköpunargáfu barnanna, vísindi, tilraunir, stærðfræði og fleira og fleira.

Skólinn hefur átt Magna Tiles kubba sem hafa verið það vinsælir að þeir eru alltaf í notkun og geta færri notað þá en vilja. Nú verður bragabót á þökk sé foreldrafélaginu að fleiri en ein deild getur verið með þá í notkun í einu.

Foreldrafélag Barnabæjar hefur í gegnum tíðina styrkt okkur í kaupum á góðum og vönduðum leikföngum sem hafa komið sér vel fyrir starfsemi skólans.

Ásamt því að styrkja okkur með gjöfum, þá sér Foreldrafélagið um Litlu jólin, jólagjöf til barnanna, sumarskemmtun og útskriftargjöf til elsta hóps.

Það er ómetanlegt fyrir skólann að hafa foreldrafélag sem styrkir og stendur þétt við bakið á skólanum.

Við í Leikskólanum Barnabæ þökkum Foreldrafélagi Barnabæjar innilega fyrir góða gjöf.

Fyrir hönd nemenda og kennara

Sigríður Helga Sigurðardóttir leikskólastjóri.