Leikskólinn Barnabær



Markmið Vináttu

  • Að móta jákvæðan skólabrag og viðhalda honum.
  • Að samfélag barnanna einkennist af gagnkvæmu umburðarlyndi og virðingu.
  • Að þróa getu barna til þess að sýna hverju öðru umhyggju og að styðja félaga sína og verja.
  • Að efni og þau gildi sem verkefnið byggir á séu eðlilegur hluti af daglegu lífi og skólastarfi.
  • Að koma í veg fyrir einelti í leiksólum og grunnskólum, með því að starf skólanna, áætlanir og viðhorf tryggi börnum umhverfi þar sem einelti nær ekki að þrífast.
  • Að þróa nýjar aðferðir og verkfæri til forvarna fyrir leikskóla og yngstu bekki grunnskóla.
  • Að stuðla að rannsóknum á einelti

Grunngildi vináttu.

1. Umburðarlyndi. Að viðurkenna og skilja mikilvægi og gildi fjölbreytileikans og koma fram við alla af virðingu.

2. Virðing. Að viðurkenna og taka tillit til allra barnanna í hópnum, að vera öllum góður félagi og virða mismunandi hátterni annarra.

3. Umhyggja. Að sýna öllum áhuga, samkennd, samlíðan og hjálpsemi. Að hafa skilning á stöðu annarra.

4. Hugrekki. Að þora að láta til sína heyra og geta sett sér mörk. Að vera hugrakkur og góður félagi sem bregst við óréttlæti.