news

Fyrsta skólaheimsóknin

20 Sep 2018

Í dag fórum við í fyrstu skólaheimsóknina.

Við fórum í tvær kennslustundir með 1. bekk.

Stóra Fjallabæ og 1. bekk er skipt uppí tvo hópa og fer annar hópurinn í íslensku og hinn í stærðfræði. Á milli kennslustundanna fórum við í frímínutur með 1-4. bekk.

Í dag æfðum við okkur að ríma, tölustafina og formin. Svo eftir kennslustundirnar fórum við í gönguferð um skólann með Lilju kennara og sýndi hún okkur uppstoppaða fugla, lifandi könguló, flugur og fleirra.


Bestu kveðjur frá Stóra Fjallabæ.