news

Fréttir af okkur

26 Sep 2018

Við höfum ýmislegt verið að bralla frá því við komum úr sumarfríi. Við bjuggum tildæmis til vélmenni úr verðlausum efnivið. Við erum búin að gera könnunarverkefni um Regnboga, við lásum bækur, horfðum á myndbönd og spáðum í ýmsu í kringum það.

Við erum alla daga að gera eitthvað skemmtilegt, föndra, læra stafina með Lubba, lærum ný lög og gerum ýmis verkefni.

Við erum búin að fara í nokkrar vettvangsferðir, í fjöruferð, á bókasafnið, í kastalann og fleirra.

Við erum mikið úti á meðan að veður leyfir :)

Bestu kveðjur frá Stóra Fjallabæ :)