news

Smá fréttir af okkur.

30 Apr 2018

Af okkur er allt gott að frétta, og nóg að gera hjá okkur alla daga.

Kiðlingarnir sem komu í heimsókn til okkar eru ansi mikið í umræðunni enþá, enda ekkert smá gaman að fá svona fína heimsókn. Þar sem einn þeirra náði að koma sér inná Hólabæ og undir borð er það ansi mikið rætt :) Þau hafa verið rosalega dugleg í útiveru og finnst ekkert eins gaman og að fá að vera úti í góða veðrinu.

Við fengum í síðustu viku lánað sullukarið og áttum öðruvísi föstudag fyrir vikið og vakti það mikla lukku enda fullt af kúlum í því ( þessar sem við erum með inná deild í flöskum). Setti inn nokkrar myndir frá því.

Við erum líka búin að vera prófa okkur áfram með Hver er undir teppinu og hefur það vakið mikla lukku, auk þess að kolakassinn er í uppáhaldi þessa dagana.

Núna vonumst við bara eftir því að veðrið haldist áfram svona flott svo við getum notið þess áfram

Bestu kveðjur frá Hólabæ.